Blog.central.is/jonasif

Hvernig líður þér?

24.04.2006 19:49:19 / jonasif

Komin með nýtt

www.joninasif.bloggar.is

Kíktu þanngað!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 00:28:51 / jonasif

leita að einhverju öðru

Hæhæ, Páksarnir hafa verið hreint ágætir ég hef brallað hitt og þetta. Farið í sveitina, fermingar, skíðfjallgöngur og bara name it! 

En meira um sveitaferiðina. Ég fór upp í bústað til systu hún var með bústað á laugavatni og ég gisti þar eina nótt sem var mjög fínt öll familinan saman og hundarnir máttu vera úti svo lengi sem þeir voru ekki lausir án eftirlits. Daginn eftir semsagt á laugardag fórum við á Fitina þar sem bústaður bróðir pabba er. Þar á hann risaland og ég gat leyft hundum að hlaupa og ærsalast eins og vitleysingar. Ég fór í heljarinnar göngutúr og leyfið þeim að synda. Rökkurdís fannst það ýtk spennó, var samt ekki alveg viss fyrst en svo henti ég dótinu aðeins útí og þá lét mín sig bara vaða! Ýkt dugleg stelpa! Á annan í páskum var ég hjá Hönnu sys og við löbbuðum á úlfarsfellið svona eins og svo oft áður og svo fórum við aðeins á hana Kötlu. Þriðjudaginn ætlaði ég að notað til að læra en nei skellti mér frekar á skíði með Krissu og Perlu. Það var ýtk gaman vorum allan tíman sem það var opið. Veðrið var klikkað, sól, snjór og ekkert af fólki!

Úff svo var skóli í dag! Ég og bara enginn held ég var auð meika það. Ýkt erfitt að halda athyglinni og vera vakandi en það tókst! Það voru samt ekki skemmtilegar fréttir sem ég fékk þegar ég kom í dag, vinkona mín og stæ meit, hálsbrotnaði í páskafríinu, það leið yfir hana og hún lenti eitthvað illa. Sem betur fer er mænan ekkert sködduð en hún á samt erfitt með að hreyfa lappirnar ennþá. Hún er öll í spelkum greyið.

En annars þá er ég hjá Ernu sys núna að passa voða gaman bara!

En ég er að hugsa um að finna mér nýtt svæði til að blogga á er ósátt við breytingarnar á blog.central... En það er allt í skoðun.

Kveðja í bili og minni á myndir á http://www.dyrarikid.is/gallery/GallerySkoda.aspx?G=690

Jónína Sif


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 18:43:26 / jonasif

Góðan daginn

Hæhæ,

Jæja þá er páskafríð komið og tími til að slappa aðeins af áður en prófin byrja! Kannski maður ætti að nota páskafríið til að læra eitthvað... en ég held að ég komi samt ekki til með að gera það. Ég veit ekki alveg hvernig pákarnir fara hjá mér en ég ætla kannski eitthvað á skíði og svo uppí sveit ég er reyndar að vinna á laugardaginn þannig að það skemmir svo lítið fyrir.

Annar er bara gott að frétta ég fór á þingvöll á fimmtudaginn til að taka video fyrir Comeniusar verkefnið í skólanum. Ég og Sólrún fórum með Heiðu og Bryndísi Vals. Það var ýkt gott veður á þingvöllum snjór og sól en alveg ótrúlega kallt. Við náðum að taka flott skot og það verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út þegar við verðum búin að klippa. Við kíktum aðeins við í Valhöll og fengum okkur kaffi og köku, fékk alveg geðveika súkkulaði köku... namm hún var sko klikkuð!

En ætla að enda þetta blog með myndum,
Kveðja Jónína Sif





» 1 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 23:58:12 / jonasif

Kannski smá blogg

Sælt veri fólkið! Afsakið þessa bloggleti, en hún kemur ekki til af góðu því það vill þannig til núna að það eru bara endalaus próf og verkefna skil, sem minnir mig á það að ég á ennþá eftir að skila ritgerð sem ég átti að skila fyrir síðustu helgi:$ En allavega eins og ég segi þá hefur verið meira en nóg að gera í skólanum. Núna er Comenius líka á fullu og á fimmtudaginn var ég nánast allan daginn ásamt Sólrúnu, Sunnu og Sögu að taka kynningarmyndband af skólanum og síðan á fimmtudaginn er ég og Sólrún að fara á þingvelli til að taka þar. Þetta ætlum við svo að sýna útlendingunum þegar þeir koma en það verður 28 apríl nk.

Í dag var ég í skólanum til 15.00 og fór svo í ökutíma síðan var ég bara ýkt þreytt hérna heima og horfði á Idolið með settinu, það var ágætt, ég hef reyndar ekki myndað mér miklar skoðanir á þessum krökkum en þau eru öll bara ágæt finnst Bríet algjört krútt því hún er alltaf brosandi en held að hún sé engin idol stjarna í sér, miklu frekar hún Ína hún var ýkt flott í kvöld.

En á morgun er ég bara að fara að vinna og ætla svo að gista hjá Hönnu sys og vakna í vinnu kl 6.00 á sunnudag, vonandi ratar leigubíllinn til hennar! Hún hefur neflilega lent í því að bílstjórar vita ekkert hvar þetta er og hún þarf að segja þeim leiðina...Jóhanna Karen er líka að fara að gista og það verður örruglega bara kósý hjá okkur í Holtinu góða.

Annars er ekki mikið að frétta, allt gengur bara sinn vanagang ég get samt allveg viðurkennt það að ég veit ekki hvernig í ósköpunum, sérstaklega ef þetta blogg verður e-ð mikið lengra ég eigi að ná að læra undir þrjú próf fyrir Mánudag! Lokapróf í Jarðfræði og svo þar ég að lesa ýkt mikið í dönsku!

En annars ef ykkur vantar bók að lesa þá langar mig að mæla með nokkurm núna; Hrafninn eftir Vilborgu Davíðs. Korkusaga eftir Vilborgu Davíðs. Samkvæmisleikir eftir Braga Ólafs.  -Svona ef ske kynni!

En er farin að lesa Min Ven Thomas í dönsku,

Hilsen, Jónína Síbil


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 19:54:45 / jonasif

Crufts

Langt síðan ég bloggaði seinast en það er komin tími til að segja aðeins frá CRUFTS!

Stuðið byrjaði strax á flugvellinum þegar ein úr hópnum fattaði að hún hefði tekið vitlausan passa:o það var oflítill tímin til að fara að keyra í bæinn þannig að hún varð að fá bráðarbirgða passa sem kostað hvorki meira né minna en einhverjar 8000 og eitthvað8 Allavega, síðan fórum við og skoðuðum okkur aðeins um í fríhöfninni og keyptum smá nammi og sonna. Síðan var bara flogið af stað til stansteð. Þar beið eftir okkur rúta sem flutti okkur alla leið til Birmingham og á hótelið Briair Rose. Það voru fyrir komnar þær; Auja og Auður, Sunna, Rán, Sigrún, Sigga og Ásta María. Og við bættust Ég, Hanna, Helgi, Bára, Bryndís, Eyrún, Ágústa, Guðrún, Matta, Silla, Helena, Jóna, Magga, Þóra, Theódóra og Jóna Dóra. Þröstur, Inga, Rakel og Ólöf. Held að ég sé ekki að gleyma neinum...

Allvega á fimmtudeginum fórum við á sýninguna og vorum mest allan daginn að skoða svæðið og alla sölubásana ó mæ god!!! Endalaust af dótaríi. Síðan eftir sýninguna fórum við í Premark sem er snildar búð og við áttum eftir að fara þanngað nokkrum sinnum í við bót og versla alveg helling:^) Um kvöldið var svo náttfatapartý hjá Báru & co.

Á föstudeginum var Border Terrier sýndur þar voru mættar til leiks þær Madonna og Drottningarlilja en þær eru í eigu ræktandans hennar Guðrúnar (sem á mömmu hennar Rökkurdís) Drottningarlilja endaði svo í 5. sæti. Ég var alveg stjörf að hofra á alla BTana margir alveg ofsalega fallegir en þó fannst mér sumir vera með of mjótt tríni. Ég er ofsalega skotin í Blue og tan litnum finnst hann agalega flottur...
Við kíktum líka aðeins á Wippetinn og Afgan. Það var einn kall bara næstum búin að selja okkur Wippet, fór að sýna okkur hreyfingar og bara allt, hehe. Síðan fórum við aðeins í mollið og enduðum á Indverskum stað sem var á móti hótelinu okkar.

Á laugardeginum var Puginn, og þeir voru endalaust flottir! Ég sat allan daginn og horfði á bara flotta hunda, sumir voru reyndar með frekar stuttar lappir. Gunilla, ræktandinn sem Gyða Sól kemur frá, var á sýningunni. Gaman að hitta hana.
Um kvöldið fórum við svo fínt út að borða á tailenskan stað sem heitir Tin Tin. Nokkrir úr hópnum ákváðu að detta vel í það og það tókst bara nokkuð vel hjá þeim.

Ég vaknaði við að Ágústa var að æla á sunnudags morguninn en hún harkaði afsér og dreif sig með systrum sínum og Báru að horfa á cockerinn. Ég Hanna og Helgi fórum aðeins að versla og enduðum á því að kaupa einhver 9 skó pör!!! Síðan fórum við á sýninguna.Fórum svo og borðuðum og drifum okkur upp á hótel til að horfa á Best in Show. Um kvöldið var svo troðið ofan í stút fullar töskur og enduðum örruglega öll saman með 100kg í yfir vigt án djóks!!!:^)

En ferðin var snild!, ég var reyndar veik og alveg raddlaus fyrstu dagana og ég skil ekki hverning Ágústa gat sofið í sama rúmi og ég þar sem ég var með svo brjálaðan hósta allar næturnar.

En er orðið kalt á puttunum á að skrifa svona mikið, myndir af sýninguna fara á mynda svæðið mitt :P

Kveðja
Jónína Sif
http://www.dyrarikid.is/gallery/GallerySkoda.aspx?G=690



» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 14:46:04 / jonasif

Sýningin

Góðan daginn!

Sýningin var um helgina eins og flestir vita. Hún var ekkert smá flott og bara öll umgjörð hin glæsilegasta ekki sýst hundarnir sem stóðu sig með stakri prýði. Alla vega gekk mér og mínum hundum vel.

Ég byrjaði á því að sýna Elsu í ungum sýn. Okkur gekk ágætlega og komumst í undan úrslit (8 manna hópinn)

Síðan var það Lúlli, við vorum búin að setja stefnuna á CACIB og vitið þið bara hvað?! við fengum það!! Þá er Lúlli orðin alþjóðlegurmeistar! Ekkert smá gaman. Síðan seinna um daginn mætum við í úrslit í tegunarhóp 9 og auðvitað vann hann þetta :P Þannig að á sunnudaginn þurfti hann að mæta aftur í BEST IN SHOW!! Það var náttúrlega ofsalega gaman og hann var ofsa fínt og flottur og það skilaði okkur í 4 sætið! ekki leiðinlegt það! 4 besti af hátt í 700 hundum!  Nina Karlsdottir sem dæmdi hann var rosalega hrifin af honum og dómurinn var bara flottur allt frábært. Eftir sýninguna kom hún svo og tók fullt af myndum af honum.

Það munaði minnstu að ég gæti ekki sýnt hana Rökkurdís. Hanna var komin með númerið og nammi tilbúin að hlaupa inn með hana, þar sem hún og Lúlli voru á nánast sama tíma. En það rétt reddaðist og ég gat sýnt hana. Okkur gekk ofsalega vel hún var svo fín enda vann hún systir sína og hálf systir og keppti svo við bróðri sinn og vann hann! Hún var sem sagt besti hvolpur tegundar! Við kepptum síðan um besta hvolp en lentum ekki í sæti.

Í schafernum var besti hundur tegundar enginn annar en Sleggjubeina Argintæta! ekkert smá gaman að því.

Palli var líka besti hvolpur teg og keppti í úrslitum, ofsa mikið fínn drengur!

Á sunnudeginum sýndi ég Berlín og hún fékk heiðursverðlaun og keppti um besta hvolp en fékk ekki sæti.

Atlas, enski setterinn fétt 2. eink eins og bræður hans.

Ronja fékk 1.eink, annað sæti og heiðursverðlaun og fór þar með upp í opinn fl. og varð í öðru þar!

Ég get ekki annað sagt en þetta hafi verið frábær helgi, þó svo að ég hafi verið veik nánast alla helgina og er það ennþá, alveg raddlaus og bara að deyja í hálsinum.:(

Á morgun er það svo bara CRUFTS!!!!!!!!!!!!!! úff spenningur

Kveðja Jónína Sif.


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 23:33:53 / jonasif

Crufts að koma

Vika í Crufts!!! og sýning um helgina...

úff ég fæ kitl í rassin, fiðrildi í magan og náladofa í tærnar við tilhugsunina um þetta! ótrúlega skemmtilegir dagar framundan, t.d þá er árshátiðin á morgun...

En allavega þá er sem sagt sýning um helgina, Rökkurdís verður að sjálfsögðu sýnd með systkinum sínum (al og hálf) Ég hef sjalda verið svona stressuð enda er þetta í fyrsta skipti sem minn EIGIN hundur er sýndur þó ég telji mig eiga, jaaa allavega vinstri tærnar á pugunum, og átti nú stóran part í henni Becky minni þá er þetta samt einhvern veginn öðruvísi:$ :) Síðan er ég líka að sýna Elsu í ungum, og Lúðvík pug á laugardaginn. Síðan á sun er ég að sýna hana Berlín litlu dverg schnauzer og Ronju risa, og svo hann Atlas sem er enskur setter. Þannig að það verður nóg að gera svo reynir maður náttla líka að vera duglegur að hjálpa til á sýningunni, það er alltaf nóg sem hægt er að gera:)

Síðan á miðvikudaginn þá er bara CRUFTS loksins!! ojj hvað ég hlakka til, þetta verður án efa æðisleg ferð með æðislegu fólk, fullt af snillingum að fara. Get bara ekki beðið:P

Á morgun verða bara 6 dagar í crufts, þetta styttist...

kveðja Jónína


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 17:34:42 / jonasif

Endalaus próf og of holdgun

Úff er að deyja úr leiðinum hérna megin, er að læra undir jarðfræði próf og er bara svo innilega ekki að nenna því! En ég verð samt að vera dugleg því ef ég verð með 7,5 eða yfir í meðaltal eftir önnina þar ég ekki að taka vorpróf!!! sem væri geggjað!
Í dag var ég svo í málfræði ensku prófi og ég get ekki sagt að það hafi gengið e-ð voðalega vel...  daginn þar áður var ég í dönskupróf sem gekk bara vel held ég og á þriðjudaginn var ég í þolprófi í leikfimi og náði 10! ég og Anna fyrstar til að ná því!!! og mánudag voru 2 skyndipróf í ensku og dk.. þannig að já þetta hefur sannarlega verið mikil prófa vika hjá mér.

Það styttist í sýningun og það er eiginlega bara óhuggnarlega stutt, bæði útaf þvi að það þýðir að árshátiðin er líka á næsta leiti og CRUFTS það eru 13 dagar þangað til að ég held þanngað út með hönnu helga og fulltaf örðru skemmtilegu fólki!

Á mánudaginn skrapp ég upp á slysó til að láta kíkja á fótinn minn því mér er alltaf illt eftir að ég sneri mig. Þá kom í ljós að ég er með einhverja ofholdgun í fætinum og þess vegna eru vöðvafesturnar ýkt bólgnar og e-ð skildi þetta ekki alveg en konan sagði að ég ætti að hvíla og mætti ekki byrja að æfa aftur fyrr en eftir 6-8 vikur!!! Ég held að ég sé ekkert að fara neitt voðalega mikið eftir því enda hef ég alveg verið að æfa... bara passa sig!

En ég ætla að halda áfram að læra,
Kveðja Jónína Sif

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 09:15:25 / jonasif

Sunnudagurinn

Hæhæ, ákavað að blogga smá áður en ég fer í skólan. Í gær var ég að vinna frá 7-15 og það var brjálað að gera enda konudagurinn. Við seldum sérstaka köku í  tilefnidagsins sem var brjálæðislega góð, ekta súkkulaði botn, vilt ber og svo vanillurjóma krem... Ég veit ekki hvað seldust margar en það voru margar það keyptu næstum allir eina plús alveg helling af öðru dótaríi. Silvía Nótt komí bakaríið í gær og fékk sér Daimtertu svona ef einhverjum langar að vita það. Hún var með öðrum dansaranum og var bara ósköpvenjuleg og talaði bara mjög skýrt enda var þetta náttla bara Ágústa sem er silvía.. 

Eftir vinnu dreif ég mig með Hönnu á  smáhundadagana í Garðheimum með Rökkurdís og Elsu. Þar var fullt af fólk sem var að skoða þær og aðra. Rökkurdís fannst þetta voða gaman, ekkert smá góð umhverfisþjálfun fyrir hana.

 Síðan um kl 16 drifum við Hanna okkur upp í Víðidal þar sem ungrasýn æfingin var að byrja. Síðan var ég líka smá að æfa Rökkurdís sem gekk bara vel og svo hundana sem ég er að sýna, Enska setterinn, Lúðvík sem var ofsalega fín! Dverg  schnauzer hvolp sem heitir Berlín og Risa  schnauzer sem heitir Ronja og ég er sennilega að fara sýna þær tvær það fer eftir því hvort ég næ því, annars þá finn ég einhvern til að hjálpa mér. Ég var upp í víðidal til kl 21 þá var ég orðin svo þreytt að ég var að deyja. Þannig að ég fór frekar snemma í bólið í gær.

En ég þarf að drífa mig í skólan

kveðja Jónína hundakella


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 14:32:42 / jonasif

Dagskráin komin

Jæja þá er dagskráin komin fyrir sýninguna!

Ég virðis bara vera nokkuð heppin með niðurröðunina. En svona verður þetta:

Hringur 1 Gunnel Holm,  8:30-10:00 Ungir sýnendur, eldri fl. 

Hringur 2 Nina Karlsdottir,  10:42-10:59 Pug, Lúlli

Hringur 4 Rui Oliveira, 11:21-12:01 Border terrier, Rökkurdís

Hringur 1 Gunnel Holm, 12:45-14:32 Þýskur fjárhundur, reyndar ekki að sýna en þetta er samt mjög miklvægt :)

Sunnudagur

Hringur 3  Luis Pinto Teixeira, 13:15-13:51, Enskur setter 

Síðan kannski Labrador og Írskan setter.

Það verður nóg að gera sko! Enda er eg farin að hlakka mikið til rosalega gaman að hafa 4 hringi enda eru hátt í 700 hundar skráðir sem er ekkert smá.

En fyrir ykkur hin þá er dagskráin á netinu http://www.hrfi.is/?a=5004

Kveðja Jónína Sif


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 00:19:35 / jonasif

Klukkuð

Anna (husky) var svo mikið æði að klukka mig þannig að...

4. störf sem ég hef unnið um ævina :
1. Bakarameistarinn
2. Leiðtogi
3. Barnapössun
4. unglingavinnan

 

4.bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
1. Green mile
2. aladín
3. mathildur
4. lion king

4.staðir sem ég hef búið á :
1. Grandanum
2. Kópavogi/hjöllum
3. Akurholtið (hjá systu)
4. ekki meir

4. sjónvarpsþættir sem mér líkar :
1.simpsons
2. Stelpurnar
3. 24
4. ER (horfi voðalega sjaldan á sjónvarp er ekki inn í þessu :P)

4. síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
1. www.hrfi.is
2. www.fa.is
3. úff held að það sé ekki fleira sem ég skoða daglega... hmm..
4. ?

4.staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Spánn (barselona, granorles, salu, ...)
2. Kanada(vancover)
3. England (london)
4. Svíþjóð(gautaborg), Portúgal, sanfrancisco, danmörk...

4.matarkyns sem ég held uppá :
1. Kjúklingabringur
2. Píta
3. Kjötsúpa
4. Bara allur matur nánast...

4.staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
1. Canada
2. England
3. Spánn
4. einhverstaðar þar sem er gott veður

4.bloggarar sem ég klukka:
1. Sólveig
2. Jóhanna
3. Karen
4. Sigrún ohh búið að klukka hana! þá bara þorbjörg

Annars þá var ég bara að hundast í dag sýningaþjálfanir byrjaðar fyrir marssýninguna, voða gaman :P Var með Elsu og lúlla í dag en á næsta sunn verð ég með þau plús rökkurdís, og kannski labrador og cocker..

Við vorum í mat ´hjá hönnu áðan voða gott!

en ætla að fara að drífa mig í bólið er ýkt þreytt


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 21:10:30 / jonasif

Keðjupóstur

Ég hef verið að velta fyrir mér undan farið öllum þessum keðjupósti sem ég fæ sendan. Flest flytja einhvern boðskap en ef maður sendir ekki póstinn áfram þá á maður eftir að lifa í óhamingju það sem eftir er en ef maður sendir til 15 eða fleiri hittir maður framtíðar ástina eftir 3.mín. Afþví að ég er svo ótrúlega hjátrúarfull þá hef ég verið dugleg að senda svona áfram en, úff hvað mér finnst það samt leiðinlegt. Þannig  að núna hef ég sagt keðjupósti stríð á hendur og ætla frá og með núna að reyna að hætta að senda hann árfam! (sumt stends maður bara einfaldlega ekki) Þannig að kæru vinir ekki búast við neinu til baka frá mér!

kveðja Jónína


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 16:43:19 / jonasif

Tæland...

...Í kópavogi.

 Áðan eftir skóla skrapp ég með múttu  í kjallaran í engihjalla þar er búið að koma upp tælenskri verslunarmiðstöð, fatabúð, skartgripabúð, matvöruverslun og ég veit ekki hvað og hvað. Allstaðar eru tælendingar að afgreiða eða réttara sagt standa tvær og tvær saman og babla eins og ég veit ekki hvað sín á milli. Síðan inn á milli kemur ,,Eg geta aðstoð þú”

Ég fer þarna inn í matvörubúðina og er eitthvað skoð kókoshnetur þá kemur afgreiðslu konan og fer að benda og pota eitthvað og ég skil ekki neitt fyst svo fer hún að sína mér hvernig eigi að vinna þessar kókoshnetur tekur allt þetta loða utan af og klífur hana og sýnir mér svo hverni eigi að ná kókosnum innan úr. Talar og hlær og ég skil ekki neitt í neinu.

Svo nær hún í aðra og segir mér að gera slíkt hið sama. Ég byrja eitthvað að remast þetta þangað til að hún rétti mér hnífinn þá gekk þetta betur og allt í einu sat ég á einhverjum dvergakolli pínu litlum og lágum og er að skrapa innan úr kókoshnetunni og á meðan stendur hún yfir mér og talar við mig á tælensku eins og ég ætti að skilja allt, síðan sneri hún sér reglulega að hinum sem voru að horfa segir eitthvað og allir hlægja, kannski ekki skrýtið að sjá ofvaxna klaufska unglingsstelpu sitja á kolli sem er svo lágr og lítill að hún kemst ekki fyrir. Ég var samt að fíla mig nokkuð vel enda sagði hún líka að ég væri duglega stelpa, ,,dugleg elskan” en ég enda náttla á aðskera mig og hætti.  Þá var ég búin að hreinsa innan úr heilli hnetu, voða dugleg stelpa. Hún vildi fá að eiga kókosinn sem ég gerði.

Konan segir mér þá að það sé námskeið hjá sér á næsta laugardag og er alltaf að spyrja hvort ég vilji koma. Þegar ég komst loksins út þá var ég með fullan poka af kókoshnetum til að föndra úr! Ég er ekki ennþá alveg búin að átta mig á afhverju en kannski ég farið að gera eitthvað sniðugt úr þeim...

 En samt skemmtilegt að kíkja þarna niður og ég mæli með því að allir kíki.

Voða gaman gaman já!


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 00:04:43 / jonasif

Eden

Ætli þetta hafi verið svona?

Dag einn í aldingarðinum Eden heyrðist Eva kalla til Guðs:

"Drottinn minn, það er smá vandamál!"
"Hvað er að Eva mín?"
"Drottinn minn, ég veit að þú skapaðir mig og hefur útvegað mér þennan fallega garð og öll þessi yndislegu dýr, og þennan frábærlega fyndna snák, en ég er bara ekki hamingjusöm".
"Af hverju ertu ekki hamingjusöm Eva?"
"Drottinn minn, ég er einmana.  Og ég er orðin hundleið á eplum".
"Jæja, Eva mín, fyrst svo er þá er ég með lausn á málinu.  Ég skal búa til mann handa þér."
"Hvað er "mann" Drottinn minn?"
"Það er "maður" Eva mín.  Hann verður gölluð lífvera, með marga slæma eiginleika.  Hann mun ljúga, svindla, hann verður hégómlegur, og mun á allan hátt verða þér til vandræða.  En.... hann verður stærri, fljótari og sterkari en þú og honum mun þykja gaman að veiða og drepa fyrir þig. Hann mun líta mjög kjánalega út þegar hann er æstur, en fyrst þú ert að kvarta, þá mun ég skapa hann þannig að hann muni fullnægja ... tja.... já... þínum líkamlegu þörfum.  Hann verður húmorslaus og mun elska að taka þátt í barnalegum hlutum eins og að slást og sparka bolta til og frá. Hann verður ekki mjög greindur svo hann mun þurfa leiðsögn þína til að hugsa skýrt."
"Hljómar vel" sagði Eva og lyfti annarri augabrúninni háðslega.
"Hverju þarf ég svo að fórna?"
"Tja, já, jæja, þú getur fengið hann með einu skilyrði".
"Og hvaða skilyrði er það Drottinn?"
"Eins og ég sagði, hann verður stoltur, hrokafullur og sjálfsánægður....
Svo þú verður að leyfa honum að halda að ég hafi skapað hann fyrst....Þetta verður leyndarmálið okkar...bara tveggja kvenna á milli!"

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 23:42:26 / jonasif

Eden

Ætli þetta hafi verið svona?

Dag einn í aldingarðinum Eden heyrðist Eva kalla til Guðs:

"Drottinn minn, það er smá vandamál!"
"Hvað er að Eva mín?"
"Drottinn minn, ég veit að þú skapaðir mig og hefur útvegað mér þennan fallega garð og öll þessi yndislegu dýr, og þennan frábærlega fyndna snák, en ég er bara ekki hamingjusöm".
"Af hverju ertu ekki hamingjusöm Eva?"
"Drottinn minn, ég er einmana.  Og ég er orðin hundleið á eplum".
"Jæja, Eva mín, fyrst svo er þá er ég með lausn á málinu.  Ég skal búa til mann handa þér."
"Hvað er "mann" Drottinn minn?"
"Það er "maður" Eva mín.  Hann verður gölluð lífvera, með marga slæma eiginleika.  Hann mun ljúga, svindla, hann verður hégómlegur, og mun á allan hátt verða þér til vandræða.  En.... hann verður stærri, fljótari og sterkari en þú og honum mun þykja gaman að veiða og drepa fyrir þig. Hann mun líta mjög kjánalega út þegar hann er æstur, en fyrst þú ert að kvarta, þá mun ég skapa hann þannig að hann muni fullnægja ... tja.... já... þínum líkamlegu þörfum.  Hann verður húmorslaus og mun elska að taka þátt í barnalegum hlutum eins og að slást og sparka bolta til og frá. Hann verður ekki mjög greindur svo hann mun þurfa leiðsögn þína til að hugsa skýrt."
"Hljómar vel" sagði Eva og lyfti annarri augabrúninni háðslega.
"Hverju þarf ég svo að fórna?"
"Tja, já, jæja, þú getur fengið hann með einu skilyrði".
"Og hvaða skilyrði er það Drottinn?"
"Eins og ég sagði, hann verður stoltur, hrokafullur og sjálfsánægður....
Svo þú verður að leyfa honum að halda að ég hafi skapað hann fyrst....Þetta verður leyndarmálið okkar...bara tveggja kvenna á milli!"

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Myndasöfn